Upphafssíða / Skilmálar
Skilmálar
1. Ábyrgð
Viðskiptavinur ber einn og óskoraða ábyrgð á:
- Að öll framkvæmd af hans hálfu sé í samræmi við lög og reglur.
- Að allt efni sem sent er í gegnum Boða sé í samræmi við lög og reglur.
- Greiðslu fyrir sendingu talskilaboða.
Ábyrgð TrackWell
- Að tæknileg miðlun upplýsinganna í gegnum Boða virki, sbr. þó ábyrgðatakmarkanir í 3.gr.
2. Almennar takmarkanir á Boða
Auglýsingar:
- Óheimilt er að nota kerfið til að senda auglýsingar eða óæskilegt efni í formi talskilaboða frá Boða.
Framsal þjónustunnar:
- Viðskiptavinur má ekki framselja þjónustuna til þriðja aðila.
3. Ábyrgðatakmarkanir
- TrackWell ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til samskiptaleysis, rofa á fjarskiptum eða annarra truflana sem kunna að verða á rekstri fjarskiptanetsins, hvort sem slíkt má rekja til línubilana, bilana í sambandstöðvum eða annarra ástæðna.
4. Gjaldtaka og innheimta greiðslna.
- Viðskiptavinur greiðir Símanum (símaþjónustuaðili) fyrir innhringingar í Boða og úthringingar talskilaboða í samræmi við gjaldskrá.
5. Lokun fyrir þjónustu
- TrackWell áskilur sér allan rétt til að loka fyrir þjónustu til viðskiptavinar þegar í stað ef viðskiptavinur brýtur í bága við 1. eða 2.gr skilmála þessara.
Mál sem rísa kunna milli TrackWell og viðskiptavinar vegna þjónustu samkvæmt skilmálum þessum skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.